I´m so weary

10.09.2008 04:59:20 / weary

ZZZzzzzzzz

Bara að láta ykkur vita að það er crazy að gera í vinnunni hjá mér í nótt....................:|

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 09:44:44 / weary

BOB

Já maður er nú varla kominn á jörðina aftur eftir þennan ótrúlega árangur hjá hjá handbolta buffunum okkar sem nældu sér í ólympíu silfrið í gær. Glæsilegur árangur sem lengi mun í minni haft.
Var reyndar svoltið skúffaður fyrir þeirra hönd að þeir skildu ekki hanga aðeins betur í frakka lafinu á Frökkunum. (uss fer á kostum:$)
Hefði verið svoltið gaman svona fyrir okkar stráka að leyfa Frökkunum allavega aðeins að þurfa að hafa fyrir hlutunum.
En silfrið er náttúrulega ótrúlegur árangur. Og maður má nú ekki alveg gleyma sér í tilætlunarseminni því fyrir það fyrsta er það eitt og sér bara frábær árangur að okkar fólk yfir höfuð komist á ólympíuleikana.
En nóg um það, mætti í fyrsta vinnudaginn í gær eftir langt frí.:|
Það voru blendnar tilfinningar að ganga inn í vinnusalinn og byrja að vinna aftur. Í fyrstalagi afþví að maður er alltaf latur og þungur að koma sér aftur af stað eftir svona langt stopp.En á hina höndina er það gott að vera farinn að vinna aftur hitta strákana og spjalla.
En svo aftur á hinn bógin þá hætti mín hægri hönd Jonní bróðir á dögunum og það verður soltil brekka að fara að þjálfa annan apa upp í að gera það sem ég reyni yfirleitt að koma mér undan að gera....:klikk:
 En áður en þetta verður of væmið fyrir ykkur hardcore blogg lesendur, á stefni ég á morgun að vakna fyrir allar aldir, arka niður að á og renna fyrir nokkrar bleikar.Mun svo skila inn skýrslu aftur síðar um hvort ég komi heim með öngulinn í rassinum eða ekki....;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 22:16:46 / weary

In the army now.

Ok þar sem ég var svona frekar latur og leiðinlegur hérna síðast þá ætla ég að verðlauna ykkur sem voruð svo þrautseyg að mæta aftur .(Þrátt fyrir allt:haha:)
Með enn meiri gleði og enn meiri glaum :$. Eins og glöggir lesendur hafa sjálfsagt getið sér til er fyrirsögnin að þessu sinni á engilsaxnesku (krosslegg fingur með stafsetninguna).
Er hún til marks um það að ég er byrjaður að reyna koma mér í gangna fært ástand.Og byrjaði trimmið strax í gær með því að skokka upp að Skeiðsvatni í gær með Dísu og Kittu. Þurfti reyndar að bera Dísu á háhest næstum allaleið upp og niður.
En þetta hafðist allt og við skemmtu okkur nokkuð vel, veiddum og óðum pínu út í jökulkalt vatnið.;)
Síðan fór ég í heljarinnar berjamó í dag tíndi alveg þrjá lítra af krækiberjum í fötu (Og fjóra lítra af öðrum berjum uppí mig.):þ

En eins og áður kom fram er farið að styttast í sumrinu og farið að styttast í göngur og þá þarf að smala blessuðum rollu skjátunum heim til byggða. Sem er reyndar bara gömul og lúmsk afsökun fyrir smalana að geta farið á haugafyllerí frá föstudagsmorgni fram á mánudagsmorgun.:klikk:
En allavega þá styttist í göngur og ekki laust við að manni sé aðeins farið að kitla í magan af tilhlökkun. Vill reyndar ekki vera gorta mig af miðilshæfileikum mínum en ég sá ábyggilega glytta í Sævar og Stulla í gegnum alla móðuna í  kvöldkaffibollanum mínum.....

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.08.2008 21:12:19 / weary

Ert að baka? Ahh haahh haa.

Hehe langt síðan síðast og allt það en svona er þetta bara. 
Allavega þá kemur hérna eitthvað smá fyrir þá þrjá sem enn kíkja hérna við öðru hvoru.
Eins og flest ykkar vita sem þekkja mig eitthvað þá náttúrulega reddaði ég sumrinu fyrir sjálfum mér með því að brjóta á mér lúkuna. (Smá afsökun fyrir litlu bloggi allavega;))
En gat samt notið sumarsins, fékk nægan tíma með Dísu minni og svoleiðis þannig að þetta jafnaðist allt út svona þannig séð.
En þegar maður er loksins laus við naglana og skrúfurnar þá er náttúrulega lítil afsökun að skella ekki á ykkur smá línu.
Er enn að jafna mig eftir fiskidaginn er meira að segja svoltið þunnur ennþá.:haha:.
Hitti helling af fólki sem ég hafði ekki hitt í hundrað ár sem var náttúrulega bara frábært.
Og svo hellti ég mig líka allveg haugfullann og fór í partí hjá ólíklegasta fólki,  sem var líka frábært.
Skemmti mér sömsé nokkuð vel þessa helgi hvað er meira hægt að segja??? 
Er að baka tómatbrauð svo ég hef eiginlega ekki tíma í þessa vitleysu...

Vááá þetta er sennilegast dauðustu bloggskrif mín síðan ég byrjaði á þessari vitleysu. :klikk:
Er þetta kannski endirinn á ótrúlegum blogg skrifum hins stórbrenglaða Ómars Sölva ofur-ölva????:o
Framh. í næsta bloggi.......:haha:
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 00:39:22 / weary

Swimming through sick lullabies

Ætla strax að biðja ykkur innilega að afsaka bloggleysið á þessari annars gríðarlega aktívu bloggsíðu. En sömsé þar sem ótrúlegasta fólk er farið að droppa inn og kommenta um bloggleysið þá varð ég hreinlega að dusta rykið af lyklaborðinu og smella á ykkur einu stykki.
Það sem hæst ber þó er að ég hef undanfarið verið að aðstoða fasteignabaróninn af Dallas og hans leiguþý við að lappa upp á kofana sem hann hefur verið að spandera í. Hef ég semsé verið mjög duglegur við að sökkva mér í botnlausa vinnu þessa dagana og ekki útlit fyrir því að ég komist úr þeim fúla pytti í bráð.
Ekki hjálpar það mikið að baróninn virðist hafa tvær undir tillur þær Hallta-Skakka og Ígor Kratos sem virðast hafa verið ráðnir þarna til að koma sér undan að gera hluti (leiðinlega hluti)og koma
þeim yfir á mig.

En loks sér fram á það að sumarið ætli að sigra veturinn þannig að maður ætti að fara að sjá fram á betri tíð/ með sól í haga og bleikar kýr./ Ég hef verið að pressa á bæjarklanið um það að fara að redda mér íbúð,svo hart hef ég gengið fram að ég held að Ingvar húsnæðis sé alveg búinn að fá nóg af smettinu á mér og skjálfi orðið á beinunum þegar hann heyrir einhvern umgang í annars hljóðdempuðu skrifstofu umhverfi bæjarklansins.

En ég er farinn að dreyma blauta drauma um mitt eigið hobbí herbergi (ohh þessi djöfs auglýsing.) ellegar íbúð sem er nógu stór til að dótið mitt rúmist þar fyrir. Ætla ég hér með að lofa einu stærsta innflutnings partýi sem sögur fara af ef úr rætist hjá mínum.
(vona að Ingvar sé ekki að lesa)
Ætla samt að reyna að halda mig á jörðinni þar sem allt er nú hverfult og svo framv. (sjá fyrri blogg)

  


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 21:52:11 / weary

I never Wanted to be the one.

 

Byrjaði þennan snilldar páskadag glæsilega eða hitt þó, vaknaði hress og kátur og ætlaði að skoppa fram í búr að sækja stóra og fallega lakkríspáskaeggið mitt frá Góu.
Kannski var það rykið í kollinum á mér svona ný vöknuðum eða kannski var það græðgin í að læsa beittum tönnunum í gómsætt lakkríssúkkulaðið. Eða kannski var það bara mín einstaka: Hæ ég heiti Ómar og ég er utan við mig. Sem varð þess valdandi að ég fattaði allt í einu þegar ég var að bogra yfir páskaeggja kassanum í búrinu að mér hafði tekist að reka hornið á fína plastbakkanum hennar mömmu ( sem hún klæðir í álpappír á jólunum og setur smurbrauðstertur á!!!!) á fokking kaf upp í augað á mér.....
Hornið á bakkanum virðist hafa staðið ögn lengra út úr hillunni en minn frumstæði heili hafði reiknað með og með þessum afleiðingum að millimetri í viðbót hefði þýtt að Ómar bláeygði hefði orðið Ómar eineygði. Mér virðist hafa brugðið svo heiftarlega við það að uppgvötva að ég væri með bakka á kaf upp í auganu að ég hentist aftur á bak og skallaði með hausinn í dyrakarminn og bjó til lítið og sætt gat á hausinn á mér. Í sömu andrá og ég hennti hausnum á mér aftur virðist ég líka hafa hennt fallega Góu lakkríspáskaegginu mínu uppí loft. Og um leið og ég gerði gat  á hausinn á mér braut ég páskaeggið mitt í þúsund mola.....:$
Allt fór samt betur en á horfðist enginn leppur og eða neitt svoleiðis bara gat á þunnum kollinum....


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 08:52:43 / weary

Þunglind bloggsíða.

Ef þetta virkar ekki er allt útlit fyrir að bloggsíðan mín hafi framið Harakírí. Allavega hef ég ekki sjálfur komist inn á hana þannig að ég reykna fastlega með því að hún hafi hreinlega látið verða af því.
Átti svo sem von á því þar sem fátt merkilegt hefur verið skrifað  hérna,engar stórar blammeringar né neitt sem maður sér eftir.
Nema kannski sér maður eftir því að hafa eldrei sleppt sér lausum hérna, kallað fólk rasista eða sjálfstæðismann eða eitthvern svoleiðis ófögnuð. 

Verð pottþétt lögsóttur fyrir þetta hægri og vinstri kannski svoltið meira hægri en hvað með það. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 00:22:51 / weary

I'll be back.

Þá sjaldan sem ég hef gott tilefni til að blogga þá verður maður að grípa tækifærið og riðja úr sér.;)
Var að koma af tónleikum hjá Dönu frænku á Báru búð og þeir fá tvo þumla upp. Tónleikarnir voru sömsé hluti af námi hennar þar sem hún kemur fram með þrem Svíum og saman skipa þau hljómsveitina Finlir.
Kom mér reyndar ekki mjög á óvart að frænka söng eins og engill. Hafði heyrt af því að hún væri góð en ég vissi ekki að hún væri svona svakalega hæfileikaríkur lagasmiður...
En allagötu hún og þau öll sem fram komu fá alveg fimm stjörnur (af fimm mögulegum) fyrir þessa frábæru tónleika.
Annars er það að frétta að ég hefði sennilega ekki átt að vera að gera grín af Þýskaantireykingafasistanum þar sem ég þurfti að fíra úr slökkvitæki í fyrsta skipti sjálfur á dögunum. Þannig var mál með vexti að það var rétt búið að brenna niður verksmiðjuna á dögunum og ég Sammi brunavörður kom til bjargar. Um eldsupptök skal ekki mikið sagt grunur leikur á íkveikju.:^)
En allagötu þá enn einusinni bjargaði ég deginum :$  

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 11:43:56 / weary

Hooray for Peter Pumpkinhead

 

Dibbidibbidimmdibbidimm dibbidibbidimmdibbidimm.

Hef ekkert mikið framm að færa í augnablikinu. Er reyndar búinn að vera frekar slappur þessa dagana (einhver iðrakveisa). En afþví að ég er náttúrulega svo miklu meira karlmenni en Simmi þá néttúrulega skvera ég mig í vinnu og rækt. Er reyndar ekki að skrúfa mig neitt svaðalega (gæti farið illa þið skiljið). Get bara ekki hugsað mér að verða veikur og hanga heima svo ég ákvað bara að gera það ekki.

 

Var svo að heyra af þýskaantireykingafasistanum sem tæmdi slökkvitæki yfir kærustuna sína af því að hún kveikti sér í sígó heima hjá þeim. Mig skortir lýsingarorð yfir hrifningu mína af þessari frétt. Auðvitað slökkti gaurinn í sígarettunni, eyðilagði íbúðina hálfdrap reykinga tæfuna og að sjálfsögðu slökkti hann í þeirru litlu glóð sem var á milli þeirra í leiðinni. Aðspurður um hvort hann sæi nokkuð eftir þessu öllu sagði hann bara nei honum væri slétt sama. Halló íbúðin ónýt, gellan hálfdauð og farin frá þér allt útaf einni fokking sígó.   Maður segir bara Þorgrímur Þráinns hvað???


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 21:15:43 / weary

Á mér stóra drauma...

Dreymdi í dag (er á næturvakt) að ég væri að tefla við Boris Spasskíj. Og var náttúrulega að tapa þegar Bobby heitinn Fischer kom labbandi til mín og sagði: Þetta lítur ekki vel út hjá þér en það er einn leikur sem gæti bjargað skákinni hjá þér. Nú sagði ég hvaða leikur gæti það hugsanlega verið? Ég er búinn að skít-tapa og Spasskíj mátar mig í næsta leik, sama hvað ég geri.
Skít-tapa segir Bobby og glottir,snýr sér svo við girðir niður um sig og drullar á skákborðið!!!! Ooojjj segir Spasskíj og hleypur í burtu.

Og þá vaknaði ég og réð drauminn strax.
Auðvitað er Bobby að segja með þessu að ég einn eigi að erfa öll "auðæfin" sem hann skildi eftir sig og mikið hafa verið í umræðunni undanfarið. Verst er að þau að öllum líkindum saman standa af ókláraðri skákklukku og frí kortum frá RJF klúbbnum víðsvegar um allt landið.

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 23:11:24 / weary

I'm a driver, I'm a winner things are gonna´change I can Feel it, :)

Eftir átakanlega súr blogg um fyllerí og djöfulgang síðustu helga er mælirinn orðinn fullur. (Og ég hættur að vera það.) Síðasta helgi var í það minnsta frí helgi enda kominn tími til.

Dísa skvís er komin með hlaupabólu. Hún stendur sig alveg eins og hetja passar sig rosa vel að klóra sér ekki og svona. Svo er nú svoltið sport að fá að bera á sig kartöflumjölið sjálf, svona eins og fín frú að púðra sig.

Öskudagurinn var svo náttúrulega bara snilld.Við vöknuðum extra snemma svo við hefðum tíma til að gera allt klárt og dressa dömuna upp. Eftir hálftíma sminkun og hárgreiðslu hjá ömmu sinni stóð lítil og sæt rauðhetta á gólfinu á Hreiðarsstöðum. Gullsetningin kom svo á eftir “Pabbi þú verður svo úlfurinn í vinnunni” Ég er nokkuð ánægður með það svona afþví að þó úlfurinn hafi fengið makleg málagjöld í sögulok þá er hann samt önnur aðalsögupersónan í sögunni. Sá reyndar fyrir mér atriði í söngleikja stíl þar sem ég gekk laus (sem úlfurinn) í plastverksmiðjunni og gerði ýmsan óskunda og Beggi Höss og Stebbi á Jarðbrú væru svifaseinir veiðimenn að reyna að ná í skottið á mér. En ég er í það minnsta mjög glaður með að hlaupabólan lét bíða eftir sér í nokkra daga það hefði sennilega farið með litla hjartað í mér ef hún hefði verið lasinn á öskudaginn.

Lífið heldur áfram og vikurnar þjóta hjá. Mér finnst ennþá vera örstutt síðan maður var að opna jólapakkana. En svona er þetta.... Hef reyndar verið svoltið illa haldinn af heimþrá þessa dagana. Svoltið skrítin tilfinning þar sem maður á hvergi í raun heima í augnablikinu, held að ég sakni þess að hafa ekki mitt eigið prívat...

Er að reyna að telja mér trú um að hafa flutt heim til ma og pa sé bara millibils ástand (ER EKKI KOMINN TIL AÐ VERA OG ÉG SKAL FINNA MÉR EIGINN ÍBÚÐ) Þó svo það verði að viðurkennast að það er nú nokkuð þægilegt líf að búa hjá þeim, þó svo að það sé bara aðeins blaðþunnur veggur á milli herbergja okkar bræðra.Og svo náttúrulega krappí gsm og sjónvarpssamband svo ekki sé talað um það að hafa ekki munaðinn af því að bjóða vinum heim í smá bjór og svoleiðis....

En að öðru í dag 11.2.(gæti orðið í gær) á mamma afmæli. Þrefalt húrra fyrir þeirri sóma konu.:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 20:04:24 / weary

Look at you all!

Uhmm. Var maður nokkuð fullur um helgina eða? Laggði mikla áherzlu á fullur bæði undirstrikað feitletrað og hallandi. Sem er meira svona til að sýna hversu skakkur maður var nú orðinn...

Þorrablótið hjá plastinu var eftir bókinni allir mjög ölvaðir.Svo ölvaðir að enginn virtist þekkja Geir Ólafs sem tróð upp rétt á eftir Hvanndals. Virtist það hafa mjög slæm áhrif á Geir, svo slæm að hann virtist alveg gleyma öllum textum og meira að segja rugla saman lögum. Tók til dæmis My way og söng það undir textanum á Þetta er lífið eða hvað það nú heitir.

Geir var svo að lokum púaður niður og gengur hann alveg örugglega með tvo ruslapoka yfir hausnum þessa dagana:)

Eftir að allir voru orðnir allverulega ofurölvi þá var skundað á bakarí og þar tók við meira fyllerí.      Kvöldið endaði svo með að Eydís og Anna skófluðu okkur bræðrum heim en með herkjum þó vegna ölvunar og dólgsláta okkar bræðra.:haha:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 10:15:07 / weary

Þorrablót eftir þorrablót

Snilld,snilld,snilld.

Þetta eru lýsingarorð sem hæfa vel Þorrablóti-Svarfdælinga sem haldið var um síðustu helgi. Þrátt fyrir að maður hafi setið nokkuð þröngt þá gat maður ekki annað heyrt en að allir væru sáttir. Skemmtiatriðin voru hin besta skemmtun og annállinn eins og vera ber fyndinn. Meira að segja óvenju vel lesinn í ár...;)

Þá klikkaði ekki dans-dúóið ógurlega Stulli&Sævar frekar en fyrri daginn. Allt fór þetta víst svo vel framm að meira að segja gat Einar Hafliða brugðið sér úr sjoppunni og látið óharðnaða unglinga sjá um að skenkja vatn og gosdrykki í hina prúðu þorrablótsgesti. Það sama var ekki hægt að segja um hús nágrannana Jóns og Lillu. Þar voru gerð mörg húsbrot og kunnugir segja að tekílað hafi bókstaflega runnið niður alla veggi, þar sem Eydís gestgjafi fór frjálslega með þessar stórhættulegu veigar.:haha:

En um morgun-daginn skal hafa fá orð.:evil:

Hann læddist aftan að manni og gjammaði búúúú!!!!!! Svo maður lá eftir dauðskelkaður í svita og svima baði. Og ekki laust við að maður fengi ekki bara pínu hausverk af öllum látunum í honum.:$   

Eftir mörg loforð um að smakka aldrei aftur þorramat né áfengi í hverskonar mynd ákvað maðurinn að rífa sig upp. Svona rétt eins og þegar Múnkhausen reif sig og bykkjuna sína upp úr mýrinni forðum,reif ég í hár mitt þar til ég hafði náð fullum bata. Bæði af móral og timburmönnum.:haha:

En næsta föstudag er svo víst þorrablót plastaranna. Þar munu skemmta hinir sí-kátu leynigestir Hvanndalsbræður sem hafa haldið uppi fjörinu á þorrablóti plastaranna frá því að elstu menn muna. (Hænan rétt man eftir blótinu í fyrra.) Gleðskapurinn mun ná hámarki um tólfleitið þegar allur bjór verður búinn og allir kallarnir í húsinu að minnsta kosti einusinni búnir að reyna við Boggu. :haha: Þá mun að öllum líkindum verða skundað á hinn sí hressa skemmtistað bakaríið þar sem gleðskapurinn mun halda áfram framm eftir nóttu. Það er nokkuð ljóst að fyrrnefnd loforð um áfengisdrykkju munu verða þver-brotin.:klikk:

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 21:42:19 / weary

Beljur á svelli!!!!

Ohhh hafði það low and lazy um helgina. Ekkert bjórþamb né annað útstáelsi á mínum.

Nei nei átti í staðin rólega og notalega helgi með Dísu minni, þar sem við lituðum,spiluðum, kúrðum og horfðum á Simpson saman og fórum svo á skauta með afa gamla....

Dísa stóð sig eins og hetja á skautunum og er bara mikið efni í skautaprinsessu (ohh alveg eins og pabbi sinn):$. Ég kom sjálfum mér nokkuð á óvart, hafði ekki farið á skauta síðan þarna um árið þegar ég fótbrotnaði (2002). En stóð mig svona helvíti vel, gat meira að segja tekið nokkra snúnínga og stökk...:$

En senu þjófurinn var samt afi gamli (pabbi) sem sýndi gamalkunna takta á gömlu slitnu skautunum sínum. Hann snérist eins og skopparakringla á svellinu og vakti mikla aðdáun hjá afabarninu.

Fékk meira að segja allsvakalega fortíðar nostalgíu frá því maður var á Húsbakka hérna í “gömlu góðu daga” . Hokkíið og svo náttúrulega hversu langt kæmumst við niður sveitina (alltaf að reyna að komast til Dalvíkur).Það má segja að þegar gott svell kom þá fóru dagarnir nánast í það að skauta og leika sér á Tjarnar-tjörninni.

En nú tekur bara við næturvakt og það þíðir bara SOFA-VINNA-SOFA-VINNA þannig það gerist alveg pottþétt ekkert markvert hjá mér næstu daga;)

En um næstu helgi er Þorrablót Svarfdælinga.(Sorri Begga en það verður ógeðslega gaman):haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 22:06:41 / weary

Stundum fara hlutirnir öðruvísi en maður ætlar..........

Fokk ætlaði nú heldur en betur að koma með handbolta pistil um hvað þetta hefði nú verið frábær leikur eða glæstur sigur fyrir Íslenskan handbolta. Eeen nei þetta var hvorugt og ég held að meira hrun sé vart hægt að finna í þjóðarsálinni hvað sem hlutabréfamarkaði líður,eða skipan héraðstómara. Jafvel ekki einu sinni ný hljómplata þar sem Geir Ólafs og Hebbi Guðmunds myndu syngja dúó gæti vakið upp meiri viðbjóð enn að sjá þessa spilamennsku í kvöld.:evil:

Mér var semsagt boðið að horfa á öruggan sigur Íslenska landsliðsins á Svíum hjá Pavle og Soniu. 

Öll vorum við örugg um að Ísland myndi vinna mis-öruggt þó.En sem betur fer galdraði Pavle fram dýrindis saltfisk pastarétt. Sem var svo frábær að við Sonia gátum hreinlega ekki ausið almennilega úr skálum reiðinnar vegna þess hversu södd við urðum.

Þetta hafa kannski verið svoltið samantekin ráð,allagötu finn ég megna lykt af samsæri.Ég er nokkuð öruggur um að Hannes Hólmsteinn standi einhvern vegin á bak við þetta, held að þetta hafi verið svona samsæri til að skyggja ekki of mikið á afmælið hans Dabba kóngs. :klikk:

Það er allagötu gott að geta kennt Hannesi um þetta, hann hefur svo breitt bak.....:$   

Enn þetta er nú ekki búið enn og strákarnir koma ábyggilega alveg dýrvitlausir í næsta leik. 

             KOMA SVO ÁFRAM ÍSLAND!!!!!!:)

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 10112
RSS tengill